Fjölbýlishús
Hlíðargata 21 | Neskaupstaður
Fjölbýlishús
Hlíðargata 21 | Neskaupstaður

Ásett verð 39.900.000 kr.

Byggt 1952

118,2 m²

4 herb.

3 svefnh.

1 baðh.

Hlíðargata 21, Neskaupstað: Um er að ræða 3ja svefnherbergja íbúð á næðri hæð í tvíblýli.


Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is


Eignin skiptist upp í forstofu, þvottahús og þar áfram í geymslu sem er í sameign (sameignin er einnig aðgengileg að utanverðu). Í alrými eignarinnar er borðstofa ásamt litlum og hentugum búrskáp og þar inn af er eldhús sem nýlega hefur verið gert upp á einkar smekklegan máta. Baðherbergi með sturtuklefa er á vinstri hönd inn af borgðstofu, á hægri hönd er stofan og þaðan útgengt á viðarpall með útsýni til suðurs. 3 svefnherbergi, öll með fataskápum. Köld geymsla í séreign er að utanverð við inngang eignarinnar. Nýlegir og viðhaldsléttir gluggar í flestöllum rýmum.


- Snotur eign á góðum stað

- Fallegur, gróinn garður

- Útsýni yfir fjörðinn


Forstofa: Flísalögð með ágætum og rúmgóðum en upprunalegum skápum.

Þvottahús: Steypt fólf sem málað hefur verið með vatnsþéttri málningu. Ágætis rými með hilluplássi. Inn af þvottahúsi er aðgengi að geymslu/sameign og þaðan er einnig útgengt til norðurs.

Borðstofa: Gott opið rými, flísalagt.

Eldhús: Er inn af borðstofu. Þar er að finna nýja og sérsmíðaða innréttingu frá Brúnás.Einkar smekkleg uppsettning of allt pláss vel nýtt. Eldhús er einnig flísalagt eins og borðstofan.

Stofa: Er parketlögð, stór gluggi er í stofunni og hurð út á sólpall að sunnanverðu. Fallegt útsýni yfir fjörðinn.

Svefnherbergi: 3 svefnherbergi, öll parketlögð með fataskápum. Í einu herbergjanna er upprunalegur innbyggður fataskápur en í hinum 2 eru lausir fataskápar.

Baðherbergi: Þar eru flísar á gólfi, fín innrétting og sturtuklefi.

Geymsla: Köld og sæmilega stór geymsla er að utanverðu, 7,4m² og er ekki hluti af birtu flatarmáli eignarinnar.


Fyrir nánari upplýsingar hafið samband: 

Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is


Athugasemdir:

- Skv. fyrri leigjanda bar á leka/rakamyndun inn á þvottahúsi, orsök lekans eru ekki kunn, mögulega útfrá útvegg en líklegt þykir að rakinn hafi myndast vegna þess að þurrkari var í sama rými /sem var að mestu lokað) og þannig hefur raki safnast upp bak við skáp sem var við útvegginn (að vestanverðu). Ekkert hefur borið á þessum raka nýlega.

- Þak eignarinnar er upprunalegt kominn er tími á skipti/viðhald. Það fellur því á kaupendur að sinna því viðhaldi í samráði við eigendur efri hæðar.

- Ekkert eiginlegt bílastæði fylgir eigninni en útbúið hefur verið stæði að austanverðu af núverandi eiganda.


Skráning eignarinnar skv. HMS:

Fasteignanúmer: F2169198

Stærð: Íbúð á hæð, 118,2m²

Byggingarár: 1952

Byggingarefni: Steypt+hlaðið

Gildandi fasteignamat: 33.250.000 kr.

Brunabótamat: 44.750.000 kr.

Lóð: Leigulóð í eigu Fjarðabyggðar, stærð lóðar er 873 m²


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.


Skoðunarskylda kaupenda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        

Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.



STAÐSETNING EIGNAR

Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar

📞 583 2500        ✉️ heimir@fastaust.is

Fleiri eignir í nágrenninu