Raðhús
Mýrargata 19 | Neskaupstaður
Raðhús
Mýrargata 19 | Neskaupstaður

Ásett verð 47.900.000 kr.

Byggt 1960

114,1 m²

4 herb.

2 svefnh.

2 baðh.

Mýrargata 19, Neskaupstað: Vel staðsett og talsvert endurnýjuð endaíbúð í raðhúsi, miðsvæðis í Neskaupstað.


Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is


Eignin skiptist upp í forstofu, lítið hol og þar inn úr er lítið salerni, rúmgóð stofa. Upp 3 tröppur má svo finna borðstofu, eldhús og rúmgott þvottahús þar inn af. Útgengt er úr þvottahúsi í bakgarð, þar erum 11m2 geymsluskúr sem fylgir eigninni. Frá borðstofu/eldhúsi er teppalagður stigi upp á efri hæð. Þar eru 2 svefnherbergi, annað með dyrum út á svalir. Það herbergi var áður 2 lítil herbergi. Einnig er baðherbergi með baðkari á hæðinni, fataherbergi og gangur með útskoti sem nýtist sem vinnuaðstaða.


- Stutt í alla helstu þjónustu

- Nýjir gluggar á allri neðri hæð

- Ljósleiðari kominn inn og tengdur

- Nýjir rofar/tenglar í flestöllum rýmum

- Nýlegt parket


SKIPULAG EIGNAR:


     NEÐRI HÆÐ:

Forstofa: Flísalögð, nýlega skipt út og nýr ofn settur upp.

Hol: Er beint inn af forstofu, parketlagt, þar undir stiganum er að finna litla en hentuga snyrtingu.

Stofa: Gott opið rými parketlagt og þaðan er gengt upp á næsta pall.

Borðstofa: Er í opnu rýmu ásamt stofu en uppi á palli 3 þrepum ofar, parketlögð, þar er þakgluggi með nýlegu gleri.

Eldhús: Er inn af borðstofu, þar er rúmgóð og snyrtileg innrétting, dúkur á gólfi

Þvottahús: Rúmgott og heiðarlegt þvottahús, þaðan er útgengt í bakgarðinn.

Geymsluskúr: Kaldur skúr í bakgarði fylgir eigninni, ca 11m2

Að framanverðu er rúmgóð timburverönd með skjólveggjum


     EFRI HÆÐ:

Gangur/útskot: Parkelagt, fínt rými með ágætis útskoti sem nýta má sem heimaskrifstofu eða leshorn.

Svefnherbergi 1: Rúmgott með dyrum út á svalir, parketlagt. Var áður 2 lítil herbergi en þau voru sameinuð í eitt.

Svefnherbergi 2: Parketlagt og einnig afar rúmgott, þar innaf er svo fínasta fataherbergi.

Baðherbergi: Flísalagt með ágætri innréttingu og baðkari með sturtugleri.


Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við: 

Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is


Athugasemdir:

-Þegar skipt var um glugga í stofu á neðri hæð hefur múrhúð skemmst lítillega, þetta verður lagað á kostnað seljanda fyrir afhendingu eignarinnar.

-Leyfi hefur fengist fyrir drenlögn að norðanverðu, hússjóður mun dekka þann kostnað þegar í þá vinnu ferður farið.

-Einnig er á plani að mála þak hússins sem sömuleiðis verður greitt fyrir úr hússjóði.


Skráning eignarinnar skv. HMS:

Fasteignanúmer: F2169422

Stærð: Fjölbýlishús, 114,1 m²

Byggingarár: 1960

Byggingarefni: Steypt

Gildandi fasteignamat: 33.450.000 kr.

Brunabótamat: 53.200.000 kr.

Lóð: Leigulóð í eigu Fjarðabyggðar, stærð lóðar er 219,2 m²


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.


Skoðunarskylda kaupenda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        

Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.


Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði


STAÐSETNING EIGNAR

Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar

📞 583 2500        ✉️ heimir@fastaust.is

Fleiri eignir í nágrenninu